Handtöskur væntanlegar frá Balmain

frettir2307.PNG

Christophe Decarnin; haust- og vetrarlína Balmain 2009-10; Mary-Kate Olsen með Alexander Wang tösku.

Hið vinsæla franska tískuhús Balmain, sem er gríðarvinsælt um þessar mundir, hefur ráðið í það að hanna handtöskur. Aðdáendur merkisins eru að vonum ánægðir með nýjustu viðbót við aðallínuna, en ef töskurnar verða eitthvað í líkingu við fatnaðinn og skóna má búast við rokkuðum töskum í glamúrstíl. Balmain hafa ekki komið með opinbera yfirlýsingu á línunni, en fréttir þess efnis fóru af stað þegar innkaupamönnum smásöluverslana í París voru sýndar sex handtöskur úr nýrri línu. Ein taskan var úr svörtu leðri með kristalssteinum og metalhnöppum á meðan önnur var með kögri og silfur festingum.

Töskurnar eru að öllum líkindum hluti af sumarleyfislínu Balmain fyrir næsta vetur, og ættu að koma í verslanir þegar líða tekur á veturinn, í kringum nóvember. Christophe Decarnin er yfirhönnuður Balmain og hefur verið lofaður fyrir einstaklega nýtískulega hönnun sem hittir beint í mark. Merkið er vinsælt meðal stjarnanna og munum við eflaust fá að sjá nokkrar með Balmain tösku á handleggnum áður en langt um líður. Miðað við að töskur eru einn arðbærasti varningur tískuhúsa þá ætti þessi stækkun að vera gáfuleg ákvörðun. Til að taka dæmi þá hóf ungi hönnuðurinn Alexander Wang að hanna handtöskur fyrir nokkru og hafa stjörnur eins og Mary-Kate Olsen, Rihanna og Lindsay Lohan sést með töskur frá Wang undanfarið.