Heidi Klum gestaritstýrir Vogue

65161244647806frettirklum.PNG

Júní tölublaðið af þýska Vogue er nokkuð sérstakt að því leytinu til að ofurfyrirsætan Heidi Klum er gestaritstjóri blaðsins. Fyrirsætan fékk yfir 140 blaðsíður til umráða í blaðinu og kallast þær ‘Heidi by Vogue‘. Heidi sýnir fyrirsætutaktana í mismunandi tískuþáttum, allt frá því að vera klassískir að stíl í það að vera framúrstefnulegir. Auk þessa ljóstrar hún upp leyndarmálum um sitt eigið líf, stíl og starfsferilinn. Eins og flestir vita er Heidi ein af aðalfyrirsætum Victoria‘s Secret undirfatakeðjunnar ásamt því að stjórna fatahönnunarþættinum Project Runway.

Heidi las þýska Vogue mikið þegar hún ólst upp, enda hæg heimatökin þar sem hún er fædd og uppalin í Þýskalandi. „Ég var mjög spennt þegar hugmyndin var lögð fyrir mig um ‘Heidi by Vogue‘ tölublaðið. Það var frábær upplifun að vinna með teymi þeirra af ljósmyndurum, hárgreiðslufólki, förðunarmeisturum og ritstjórum," segir Heidi. Tískuþættirnir voru allir myndaðir á einni viku en hún segir það einungis hafa tekist þar sem samvinnan var til fyrirmyndar. Hún segist vilja taka þátt í svipaðri reynslu aftur, að fá að stjórna tískutímariti, enda alltaf til í nýjar áskoranir. Aðdáendur Vogue og Heidi Klum ættu að næla sér í eintak enda ekki á hverjum degi sem fyrirsætur frá því ráðið hvað birtist í tískublöðunum.

Þeir sem lesa þýsku geta lesið ýmislegt efni um Heidi á vefsíðu þýska Vogue, www.vogue.de, en þar er einnig að finna úrval mynda af fyrirsætunni.