Henry Holland hannar sokkabuxur

frettirholland.PNG

Breski hönnuðurinn Henry Holland hefur hannað línu af sokkabuxum fyrir sokkabuxnafyrirtækið Pretty Polly, en þær fóru í sölu í lúxus deildarversluninni Selfridges í síðustu viku. Henry Holland er einn af upprennandi hönnuðum Bretlands og starfrækir tískumerkið House of Holland. Merkið er þekkt fyrir sérstaka hönnun með mikið af litum og áberandi flíkum. Aðdáendur hans eru til dæmis þær Agyness Deyn og Pixie Geldof, en þær hafa báðar sést í sokkabuxunum undanfarið.

Sokkabuxur Henry Holland fyrri Pretty Polly endurspegla litríkan og áberandi stíl hans. Þær koma í ýmsum skemmtilegum munstrum og og eru mismunandi gegnsæjar. Flestar týpurnar fást í fjórum litum, fyrir utan svartan sem sýndur er að ofan, eru það fúksíubleikur, lillablár og túrkislitaður. Þær ættu því að hressa allverulega upp á leggi Bretanna yfir vetrartímann. Henry er að vonum ánægður með afraksturinn. „Mér líður eins og ég hafi fundið köllun mína með þessari sokkabuxnalínu.“