Hermés rækta sína eigin krókódíla

62141244940661frettirhermes.PNG

Hermés tískuhúsið hefur nú hafið ræktun á krókódílum til að koma til móts við pantanir á hinni vinsælu Birkin tösku í krókódílaleðri. Biðlistinn fyrir Birkin tösku með skriðdýraleðri getur verið allt upp í nokkur ár en þær töskur koma með verðmiða upp á 50 þúsund dollara eða tæpa 6 og hálfa milljón íslenskra króna. „Við höfum hafið ræktun á okkar eigin krókódílum á okkar eigin bújörð, aðallega í Ástralíu. Heimurinn er ekki fullur af krókódílum," sagði forstjóri Hermés um málið. Hann segir ákvörðunina hafa verið tekna þar sem þeir áttu erfitt með að standa á móti eftirspurninni eftir töskunum.

Hátt verð skriðdýraleðurstaskanna, miðað við þær venjulegu, ákvarðast af tveimur þáttum aðallega. Fyrir það fyrsta getur það tekið þrjá til fjóra krókódíla til að afla nógu miklu leðri fyrir eina tösku. Einnig er ræktunin kostnaðarsöm þar sem hver krókódíll þarf að vera einn í búri til að lágmarka skemmdir á leðrinu vegna bitfara. Fréttirnar um ræktunina fóru ekki vel í meðlimi dýraverndunarsamtakanna PETA. „Hugsunin um að rækta og drepa krókódíla fyrir úrelta og ofmetna handtösku ætti að valda óhugnaði hjá hverri tískudömunni," segir í yfirlýsingu frá PETA. Stjörnurnar eru miklir aðdáendur Birkin taska en allra dyggasti aðdáandinn er án efa Victoria Beckham sem á yfir 100 eintök af töskunni.