H&M og Zara í kreppunni

11681238770211frettir0304.PNG

Nú þegar efnahagurinn er ekki upp á sitt besta hefur smásala minnkað til muna. Tískuiðnaðurinn hefur ekki farið varhluta af því en til að mynda hefur hagnaður H&M keðjunnar minnkað um 12 prósent á fyrsta ársfjórðungnum. Ástæðan ku vera óhagstæð gjaldeyrisskipti, en tapið er það fyrsta í 5 ár fyrir fyrirtækið. Ef hins vegar eingöngu er tekið mið af nýopnuðum H&M verslunum kemur í ljós að í þeim óx salan um 18 prósent. Líklegasta skýringin á því er að á svæðum nýopnaðra verslana hefur ekki verið auðvelt að nálgast keðjuna áður og því mikil sala í byrjun.

Ólíkt sænsku keðjunni H&M ásamt mörgum tískukeðjum til viðbótar hefur Zara gengið þónokkuð vel á alþjóðlegan mælikvarða. Á meðan margar keðjur í Evrópu, Asíu og Bandaríkjum berjast við fjárhagserfiðleika og hafa þurft að loka verslunum, þá tilkynnti Inditex, móðurfélag Zöru, að salan hefði aukist um 10 %. Þakka þeir góðu vöruflæði og ódýrum verðum, en varan er komin í verslanir innan tveggja vikna frá teikniborðinu.

Aðrar keðjur sem Inditex hefur á sínum snærum er meðal annars Massimo Dutti, Pull and Bear, Stradivarius og Bershka. „Inditex veitir fólki nýjustu tískuna á viðráðanlegu verði, þannig að þeir eru raunverulegur valkostur milli fínni tískumerkja," segir Luca Solca, starfsmaður fjármálafyrirtækis. Hún segir jafnframt að Zara hafi miklu meira af tískuvarning að bjóða heldur en til dæmis Gap sem selji meira af grunnflíkum.

Á öðrum nótum þá náðu bæði H&M og Zara inná lista yfir topp fimm verðmætustu smásölufyrirtækin í Evrópu. H&M komst efst á listann, virði 10 billjón punda, en Zara í fimmta sætið virði 4 billjón. Athygli vakti að Topshop keðjan var ekki á listanum þrátt fyrir miklar vinsældir í heimalandinu og víðar. Þær vinsældir virðast ekki hafa verið nægar en það er aldrei að vita hvort Topshop nái sér á flug fyrir næsta ár.