Hönnuðir keppast um hlutverk í sjónvarpsþáttum

frettirtv.PNG

Blake Lively og Tory Burch í "gervi" skrifstofunni; Zac Posen í gestahlutverki sínu í The Beautiful Life.

Nýjasta æðið meðal hönnuða Bandaríkjanna er að hækka vinsældarstöðul sinn með því að koma fram í gestahlutverki sjónvarpsþátta. Þættirnir sem um ræðir eru annars vegar hinn geysivinsæli Gossip Girl, um líf unglinganna í efri stétt New York borgar, ásamt nýja þættinum The Beautiful Life, sem fjallar um líf fyrirsæta og dramatík þeirra á milli. Báðir þættirnir eiga sterk tengsl við tískuna, sá fyrri er eins og allir vita þekktur fyrir flott föt en sá seinni fjallar um tískuheiminn út frá skuggahliðum hans.

Nýjustu fréttirnar eru þær að Tory Burch og Georgina Chapman (hönnuður Marchesa) muni koma fram í væntanlegum þáttum Gossip Girl. Þær eru í sitt hvorri senunni í sama þáttinum sem sýndur verður í byrjun október. Ekki er vitað hvert hlutverk þeirra er, en þó hefur það verið afhjúpað að Tory Burch komi fram í setti útbúnu sem skrifstofa hennar. Fyrir utan þær Burch og Chapman hefur hönnuðurinn Michael Kors áður birst í Gossip Girl þætti sem fjallaði um tískuvikuna í New York.

Hvað hinn þáttinn varðar, The Beautiful Life, þá varð það frægt fyrir nokkru að Zac Posen tók að sér að leika í þættinum. Hann lék sjálfan sig í senu sem átti að gerast baksviðs á tískusýningunni hans. Nina Garcia, tískustjóri Marie Claire og metsöluhöfundur þriggja tískubóka, hefur einnig leikið í þættinum. Þar sem þátturinn er allur um tísku og fyrirsætur er búið að bóka fullt af fleira tískufólki í tökur. Þar á meðal eru hönnuðirnir Matthew Williamson og Erin Fetherston ásamt fyrirsætunni Jessicu Stam.