Hönnuðir sitja fyrir í eigin hönnun

21141244456366frettir0806.PNG
Marc Jacobs fyrir Louis Vuitton; Jason Wu; Alexander Wang; Laura og Kate Mulleavy sem mynda Rodarte.

Árleg verðlaun félags amerískra fatahönnuða, sem er vanalega kallað CFDA, verða haldin 15.júní. Tilnefningarnar voru tilkynntar í lok mars og eru það ýmsir hönnuðir sem eru tilnefndir í hinum ýmsu flokkum. Jason Wu, Thakoon og Alexander Wang keppa til dæmis allir um titilinn Upprennandi hæfileikinn. Marc Jacobs hlýtur svo alþjóðleg verðlaun og Anna Sui fær verðlaun fyrir lífstíðarafrek. Samtals eru það 21 hönnuður sem eru tilnefndir til verðlauna og voru þeir beðnir um að sitja fyrir í eigin hönnun fyrir sérstakan bækling sem verður dreift á verðlaunaafhendingunni.

Í fyrra var það brasilíska fyrirsætan Raquel Zimmermann sem fékk þann heiður að sitja fyrir í hönnun tilnefndra en nú var hafður annar háttur á. Hvort sem forsvarsmönnum verðlaunanna fannst bruðl að eyða peningum í fyrirsætu í ár er óljóst en það er þó alltaf skemmtileg að breyta út af vananum. Það að sjá Jason Wu í galakjól og Marc Jacobs með kanínueyru úr Louis Vuitton línu sinni er eitthvað sem maður sér ekki á hverjum degi. Eitthverjir höfðu meira að segja orð á því að kanínueyrun færu engum eins og vel og Jacobs sjálfum, ekki einu sinni Madonna leit vel út með eyrun á höfðinu.

Nokkrar myndanna af hönnuðunum klædda hönnun sinni hafa birst á netinu en enn eru fleiri sem eru óbirtar, þar á meðal er ein sem er talin sú flottasta af þeim öllum, Proenza Schouler hönnuðirnir Jack McCollough og Lazaro Hernandez nota handtöskur úr línu sinni sem boxhanska. Það er ljósmyndarinn Craig McDean sem tók myndirnar og þykir honum hafa tekist einstaklega vel til að sýna hönnuðina í öðru ljósi. McDean vann með stílistanum Karl Templer og saman ákváðu þeir gera eitthvað öðruvísi en áður.