Hugmyndaríkir bolahönnuðir

frettirbolir.PNG

Hver man ekki eftir bolaæðinu sem fylgdi litríkum bolum Henry Holland með grípandi tilvitnunum til fólks innan tískubransans? Chritsopher Bailey, hönnuður Burberry, og Giles Deacon voru báðir teknir fyrir á áprentuðum bolum Henry. Nú eru það hins vegar aðrir bolahönnuðir sem fá alla athygli tískuheimsins. Christopher Sauvé varð frægur fyrir boli sína með áletruninni „I DIE. BANANAS“ sem á rætur að rekja til stjörnustílistans Rachel Zoe sem notar orðin óspart yfir hluti sem hún heldur vart vatni yfir. Vinsældir bolsins náðu þó aldrei neinu flugi þar sem Sauvé fékk bréf frá lögfræðingum Zoe um að orðin væru skrásett vörumerki og hann gæti þar af leiðandi ekki selt bolina.

Sauvé brást við með því að búa til bol með skýrri tilvitnun í þann fyrri en með áletruninni „I LIVE. PINEAPPLES“ í staðinn. Hann hefur einnig snúið sér að gerð annars konar tískubola. Anna Wintour er sérstakt skotmark, en bolir með andliti hennar bera setningarnar „God Save The Queen“ og „Save Anna“. Nýjasti bolurinn er svo nokkuð trúarlegur, en á honum er að sjá mynd af Guð með áletruninni „God Don‘t Like Ugly“. Fyrirsætan Ida Pyk hefur einnig snúið sér að bolahönnun en hún einbeitir sér að lystarstoli. „i was anorexic“ prýðir einn bolinn en á bakhliðinni stendur „but i am okay now“. Auk þess bera sokkabuxur orðin „anorexic legs“.

Hægt er að skoða fleiri boli Sauvé á síðunni hans www.christopherleesauve.com.