Ilmvatnsvandræði Diane von Furstenberg
Diane von Furstenberg; umrædd verslun DVF í Meatpacking hverfinu í New York; D ilmurinn.
Diane von Furstenberg, tískuhönnuðurinn og formaður félags amerískra fatahönnuða, kom nýlega með nýjan ilm á markað, D Eau de Parfum. Hann hefur fengið mikla athygli en þó ekki af jákvæðu tagi. Þannig er mál með vexti að viðskiptavinir í verslun hennar í New York voru ekki harla ánægðir þegar ilmnum var spreyað inn í loftræstikerfi verslunarinnar. Ilmurinn er að sögn viðskiptavina mjög sterklyktandi. ”Mig bókstaflega svimaði af honum. Lyktin er viðurstyggileg, skelfileg, eitthvað sem þú finnur af 60 ára gamalli ráðskonu,” var haft eftir konu sem átti leið framhjá versluninni. Ilmurinn barst víst út á götuna og þótti konunni það vera fyrir neðan allar hellur.
Önnur kona sagði það einungis tímaspursmál hvenær einhver myndi verða veikur af lyktinni eða fá ofnæmisviðbrögð, svo sterk væri hún. Umsagnirnar eru ekki beint besta auglýsingin fyrir ilmvatnið en þegar þær voru bornar undir fjölmiðlafulltrúa DVF þá sagðist hún ekki hafa heyrt um málið en að það myndi verða tekið til skoðunar. Samkvæmt vefsíðu DVF er ilmurinn ”framandi blanda af mandarín blómum, fjólulaufum og litkaberum. Ásamt jasmín, ylang-ylang og liljum en pipar og múskat færa ilminum djarfleika. Að lokum reikar D út í villtan og dularfullan skóg með sedrusvið, patsjúlírunna og sandelvið.” Af lýsingunni að dæma er nóg af ólíkum ilmum sem mætast í D og geta skiljanlega farið illa í lyktarskyn sumra.
Þetta eru ekki einu hrakfarirnar sem DVF fyrirtækið hefur gengið í gegnum nýlega, því í vor var það sakað um hönnunarstuld en Diane samdi um málið í lok júní.
