Isabellu Blow minnst með tveimur ævisögum

frettirblow.PNG

Breska tískuíkonið Isabella Blow lést fyrir tveimur árum aðeins 48 ára að aldri, eins og mörgum er eflaust minnisstætt. Tískuheimurinn missti þar stórmerkilegan karakter, en Blow var meðal annars þekkt fyrir einstaka hatta. Hún afrekaði ýmislegt um ævina og var um tíma aðstoðarkona Önnu Wintour á sínum yngri árum, hún hefur unnið með frægum ljósmyndurum og hönnuðum auk þess að starfa á tískufjölmiðlum. Ekki má svo gleyma að það var Blow sem uppgötvaði hönnuðina Alexander McQueen og Hussein Chalayan, og fyrirsætuna Sophie Dahl. Blow átti í hatrammri baráttu við þunglyndi og reyndi nokkrum sinnum að fyrirfara sér. Hún lést að lokum eftir að hafa neytt illgresiseyði.

Til vitnis um hversu áhugaverða ævi Blow átti, þá eru væntanlegar tvær ævisögur um hana á næsta ári. Fyrri bókin, sem kemur út næsta vor, kallast Blow by Blow: The Story of Isabella Blow og er skrifuð af Tom Sykes sem kynntist Isabellu í gegnum systir sína sem var aðstoðarkona hennar á Vogue. Sykes nýtur aðstoðar eiginmanns Blow til 18 ára, Detmar Blow, við skrifin. Sykes ætlar á næstunni að taka viðtöl við vini, kunningja og samstarfsmenn Blow í New York og London til að fá betri innsýn í líf hennar. Önnur ævisagan kemur svo út rétt fyrir þarnæstu jól og var tekin saman af Lauren Goldstein Crowe, fyrrum tískubloggara og höfundar bókarinnar The Towering World of Jimmy Choo.