Jacobs, Moss og Timberlake í Vogue

85481240327968frettir2104.PNG
Jacobs, Moss og Timberlake í maí hefti Vogue; Anna Wintour ásamt dóttur sinni Bee Shaffer á Costume Institute Gala í fyrra; Kate Moss á galakvöldinu í fyrra; Marc Jacobs á galakvöldinu í fyrra.

Í síðustu viku var birt mynd úr maí hefti ameríska Vogue tímaritsins, en á myndinni sitja hönnuðurinn Marc Jacobs, fyrirsætan Kate Moss og söngvarinn Justin Timberlake fyrir. Myndin er hluti af syrpu sem kallast ,Innblásin fegurð‘ og er tekin af vinsæla ljósmyndaranum Annie Leibovitz. Á myndinni er að sjá Kate Moss í gylltum síðkjól frá Oscar de la Renta á milli Jacobs og Timberlake. Ástæðan fyrir tríónu á myndinni, er að þau koma öll að Costume Institute Gala sem haldið er árlega í New York.

Costume Institute Gala er án efa eitt glæsilegasta og veglegasta galakvöldið í tískuiðnaðinum en þar koma saman allir helstu hönnuðir heims og er þeim fylgt af kvenkynsstjörnum sem klæðast síðkjólum eftir hönnuðina. Sæti á þessum eftirsótta viðburði er ekki ódýrt og voru þónokkrar vafasemdir um að hönnuðir myndu ekki tíma að mæta þetta árið vegna fjármálavandamála tískuhúsanna. Sætið kostar frá 5 til 10 þúsund dollara, eða frá 650 þúsund til 1,3 milljóna íslenskra króna.

Heiðursgestgjafinn í ár er Marc Jacobs en þau sem deila stöðunni með honum eru áðurnefnd Kate Moss og Justin Timberlake, ásamt Önnu Wintour, ritstjóra Vogue. Þema kvöldsins er ‚Fyrirsætur sem andagift: Ímynd tískunnar‘ og munu því fyrirsætur skipa stóran sess á galakvöldinu, sem haldið verður mánudaginn 4.maí. Þema ársins í fyrra var með ofurhetjubrag og voru kjólarnir í skemmtilegum framtíðarstíl.

Tveimur dögum eftir galaviðburðinn verður opnuð sýning á Metropolitan safninu og verða þar sýndar hátísku- og tískuflíkur 70 hönnuða en auk þess verða tískuljósmyndir til sýnis. Með þema ársins í huga verður talsverð athygli á fyrirsætur frá síðustu áratugum, þá sérstaklega ofurfyrirsætum níunda og tíunda áratugarins. Sýningin stendur til 9.ágúst og ættu því þeir sem eiga leið um New York í sumar að kíkja á sýninguna.