Jessica Stam + Rag & Bone
Jessica Stam ásamt David Neville (t.v.) og Marcus Wainwright (t.h.); Stam í haustsýningu Rag & Bone '09; Stam í sumarsýningu Rag & Bone '09.
Hönnuðir Rag & Bone, þeir David Neville og Marcus Wainwright, staðfestu nýverið að kanadíska fyrirsætan Jessica Stam sé að hanna fyrir þá. Aðspurður vildi Wainwright ekki gefa upp nein smáatriði, hvort um væri að ræða heila fatalínu eða staka flík líkt og þegar þeir fengu fyrirsætuna Maryna Linchuk til að hanna fyrir sig leðurjakka fyrir haustlínu þessa árs. Það eina sem hann gaf upp var að þeir ásamt Stam séu búin að ”hanna nokkrar flíkur saman”, en búast má við að fá að líta samvinnuna augum í sumarlínu næsta árs, sem sýnd verður í New York í september.
Það má segja að Jessica Stam sé fastráðin fyrirsæta hjá Rag & Bone því hún hefur gengið sýningarpallinn fyrir þá félaga frá upphafi, eða alls sex sinnum. Það er því aldrei að vita nema Stam gangi í Rag & Bone tískusýningunni í haust klædd eigin hönnun.
