Jil Sander til liðs við Uniqlo

47071238163670uniqlo.PNG

Minimalíski hönnuðurinn, Jil Sander, hefur hafið samstarf við japanska fataframleiðandann Uniqlo. Þetta var tilkynnt í síðustu viku. Sander hefur stofnað tískuráðgjafafyrirtæki og hennar eina verkefni um þessar mundir er sérstök ráðgjafastaða í kven- og karlmannalínum merkisins. Uniqlo er mun vinsælla í Asíu en annars staðar í heiminum, þó að þeir séu einnig með verslanir í London, New York og París.

Margir kannast við Jil Sander en það er einnig nafn á tískumerki sem hún stofnaði en starfar ekki lengur við. Ástæðan er að árið 1999 keypti Prada veldið fyrirtækið af henni og eftir aðeins nokkra mánuði sagði hún upp vegna ósamkomulags. Árið 2003 kom hún aftur til starfa fyrir merkið en varði það aðeins í eitt ár. Síðan 2005 hefur Raf Simons verið hönnuður Jil Sander og hún sjálf hefur legið í dvala innan tískuheimsins.

Í síðasta mánuði sást til Sander á efnamarkaði og fór þá orðrómur á stað að hún væri að fara að birtast aftur í sviðsljósi tískuheimsins. Kom það mörgum á óvart að hún skyldi ganga til liðs við Uniqlo. Þótt hún verði mest í ráðgjafastörfum fyrir merkið, segja talsmenn fyrirtækisins að þegar rétti tíminn komi muni hún hanna eigin línu.

Fyrirtækið hefur reynt að fá Sander til liðs við sig síðan síðasta sumar og segja forsvarsmenn þess að enginn annar hafi komið til greina. Hún er sú besta, var haft eftir stjórnarformanninum, sem sagði hana eiga heiðurinn á vinsældum nútímlegra undirstöðuflíka. Sander er vissulega þekkt fyrir einfalda og minimalíska hönnun en gaman verður að sjá hvernig tískuhönnuðinum tekst að stýra hönnun fyrirtækis sem hannar ódýrar flíkur fyrir massann.