Jimmy Choo fyrir H&M í haust

21931245319681frettirchoo.PNG
Skór úr H&M línu Jimmy Choo; Tamara Mellon (t.v.) og Margareta van den Bosch, listrænn ráðgjafi H&M, (t.h.)

H&M kynnti nýjustu hönnunarsamvinnu sína í gær en það myndi vera skó- og aukahlutaframleiðandinn Jimmy Choo. Þetta er í fyrsta skipti sem H&M fær til liðs við sig aukahlutafyrirtæki í hönnunarseríu sína en línan mun innihalda skó og aukahluti fyrir konur og karla ásamt fatnaði fyrir konur. Þetta er í fyrsta skipti sem Jimmy Choo fer út fataframleiðslu.

"Okkur þykja það forréttindi að fá að vera meðal þeirra bestu í tískunni sem hafa farið í samvinnu við H&M nú þegar, og að fá að hanna línu sem mun höfða til kvenna sem hafa tískuvitund og eru smart, og að geta innihaldið flotta hluti fyrir mennina líka," segir Tamara Mellon, stofnandi og forstjóri Jimmy Choo. „Jimmy Choo mun færa H&M fágaða, tískumeðvitaða, aðgengilega og glæsilega línu – fullkomna partýhluti til að nota þegar á að fara út á lífið," segir Mellon jafnframt.

H&M kemur sífellt á óvart með hönnuðina sem fara í samvinnu við þá en eins og margir muna var Matthew Williamson síðasti hönnuðurinn til að gera línu fyrir keðjuna. Jimmy Choo er gríðarlega vinsælt lúxusmerki sem selur funheita skó ásamt beltum og töskum. Samkvæmt sýnishornamyndum af línunni mun hún meðal annars innihalda zebra- og hlébarðamunstur og himinháa hæla. Búast má við línunni í 200 verslanir H&M um allan heim hinn 14.nóvember.