Just Cavalli bjargað
Roberto Cavalli; Kate Moss í sumarherferð Just Cavalli.
Á hverjum degi birtast fréttir um kreppuna og afleiðingar hennar hvar sem er í heiminum. Fyrirtæki minnka við sig, fækka verslunum eða fara á hausinn. Ódýrari lína ítalska hönnuðarins Roberto Cavalli, Just Cavalli, stóð tæpt á dögunum þegar móðurfyrirtækið, Ittierre SpA, fór á hausinn. Hann þurfti að hætta við tískusýningu Just Cavalli og halda litla kynningu fyrir fjölmiðla í byrjun febrúar, sem hann var síður en svo ánægður með.
Á fjölmiðlafundi í lok febrúar ræddi hann um framtíð merkisins, sem á þeim tíma var óviss. Svo mikið tók óvissan á Cavalli að hann brast nærri því í grát. Hann sagði frá því að „merkið væri að missa mannorð sitt og að það væri við það að brotna – merki sem var búið til úr gulli." Cavalli atti kappi við að úthúða Ittierre SpA og sagðist ætla að taka Just Cavalli á sín snæri eða finna aðra fjárfesta.
Skjótt skipast veður í lofti, því Ittierre SpA og Cavalli náðu sáttum í síðustu viku og hafa endurnýjað samning sín á milli til fimm ára. Cavalli reyndi að gera lítið úr ástandinu eftir á, „Just Cavalli? Bara smá hiti, ekkert alvarlegt. Núna erum við sterkari og heilbrigðari en nokkurn tíma áður. Þetta mun koma þeim í uppnám sem vonuðu það versta."
