Karen Elson í cruise auglýsingum Chanel

86061243515006frettircruise.PNG

Einungis tvær vikur eru síðan cruise lína Chanel var sýnd á ströndinni í Feneyjum á Ítalíu en nú þegar hafa birst myndir úr auglýsingaherferð línunnar. Það er fyrirsætan Karen Elson sem prýðir auglýsingarnar. Elson er bresk og er þekkt fyrir fallega rautt hár sitt. Hún er þrítug að aldri og því frekar gömul í fyrirsætuárum en hún á glæstan feril að baki þar sem hún hefur gengið tískusýningar fyrir alla helstu hönnuði heims ásamt því að birtast í hinum ýmsu auglýsingaherferðum. Hún hefur einnig birst á forsíðum tískutímarita á borð við Vogue, Dazed & Confused, Numéro og Elle. Elson á og rekur eigin vintage verslun í Tennessee í Bandaríkjunum.

Í umræddri cruise herferð Chanel sést Elson í dökku, gamaldags hótelherbergi og var það sjálfur Karl Lagerfeld sem tók myndirnar. Þrátt fyrir að öll stærstu nöfnin í fyrirsætuheiminum hafi gengið sýningarpallinn í cruise sýningunni var Elson ekki þar á meðal. Það var þó engu líkast en að hún hefði gengið beint úr sýningunni í myndatökuna því hár hennar var krullað eins og hár allra fyrirsætanna í sýningunni. Stemning myndanna er viðeigandi fyrir línuna en þar má sjá dökkrautt rúmteppi og gardínur en þessi sami rauði litur var áberandi í línunni. „Feneyjar hefur ekta dökka og dularfulla hlið sem heillaði mig. Mér líkar ítalski andinn og Feneyjalífsstíllinn," sagði Lagerfeld um línuna.