Karl Lagerfeld hannar ballettbúning

31621244044867frettirballett.PNG

Tískuhönnuðir virðast vera að fá sífellt fleiri störf sem búningahönnuðir. Í byrjun maí var tilkynnt að þýsku hönnuðirnir Viktor & Rolf hefðu hannað búninga fyrir óperuverk. Chanel staðfesti svo á fimmtudaginn að yfirhönnuðurinn Karl Lagerfeld hefði hannað sérstakan búning fyrir breska ballettinn. Búning Lagerfeld klæðist dansarinn Elena Glurdjidze í The Dying Swan. Elena dansaði ballettinn fyrir Lagerfeld í lokamátuninni og er víst að hönnuðurinn hefur verið hrifinn þar sem hann hefur lengi verið innblásinn af ballett.

Lagerfeld fetar í fótspor Coco Chanel með búningahönnuninni þar sem hún hannaði búninga fyrir ballettsýningar á þriðja áratug síðustu aldar. Búningur Elenu var handsaumaður að hætti hátískunnar og er búinn til úr tulle efni og yfir 2500 hvítum fjöðrum. Það tók þrjár saumakonur meira en hundrað vinnustundir að sauma og útfæra kjólinn. Það er þó mikilvægt að búningurinn sé vel gerður segir Glurdjidze: „Við segjum alltaf að yfirbragðið ráðist 50 prósent út frá hvernig maður dansar. Þannig að það er mikilvægt að vera í fallegum búningi."