Kate Moss á sérkennilegri forsíðu TAR

74801242735052frettirtar.PNG
Forsíða annars tölublaðs TAR; Natasa Vojnovic í innyfla innblásnum myndaþætti í TAR; Evanly Schindler ritstjóri TAR.

Forsíðu nýjasta tölublað listatímaritsins TAR prýðir ofurfyrirsætan Kate Moss. Það sérkennilegasta við myndina er að það er líkt og búið sé að rífa húðina af hálfu andliti hennar. Það er listamaðurinn Damien Hirst sem á heiðurinn á forsíðunni. Forsíðan gæti vakið óhug einhverra en miðað við hversu mikil vinna fer í að lagfæra stjörnurnar á forsíðum tískutímarita í myndaforritum eins og Photoshop, þá er þetta svo sannarlega ný og fersk hugmynd.

Ritstjóri TAR er Evanly Schindler upphafsmaður BlackBook tímaritsins en hann ákvað að stofna TAR til að kanna sambandið milli lista og tísku frá sjónarhorni sem er bæði vitsmunalega hnitmiðað og félagslega meðvitað en í senn sett upp á stíliseraðan hátt. „Ég tel að forsíðan flétti saman, bæði meðvitað og ómeðvitað, mörg stig fegurðarímyndarinnar, með því að rífa af húðlögin og sjá hvað er fyrir innan," sagði Schindler um hugmyndina að baki forsíðunnar.

TAR er nýtt tímarit sem á að koma út tvisvar á ári. Tölublaðið með Moss á forsíðunni er annað í röðinni en það fyrsta þótti ganga vel, jafnvel þó að heimur tímaritabransans sé erfiður núna með sífellt fleiri tímaritum að fækka útgáfudögum eða hætta alveg útgáfu. Eitthvað var minna um auglýsingar í öðru tölublaði TAR, en Schidler er þó bjartsýnn enda segist hann fyrst og fremst líta á Tar sem listabók um það sem er að gerast í nútímaheimi listarinnar.