Kate Moss fyrir Topshop
Eftir átta fatalínur fyrir Topshop, hefur Kate Moss nú komið með sína níundu línu fyrir tískukeðjuna. Fyrir sumarlínu þessa árs vann hún mikið með Liberty blómamunstur. „Ég elska að klæðast munstrum, sérstaklega á sumrin og þau hafa verið vinsæl í fyrri línum mínum," útskýrði Moss. „Þegar ég aflaði hugmynda fyrir sumarlínuna skoðuðum við mörg gömul munstur og flest mín uppáhalds komu úr smiðju Liberty."
Moss valdi samtals þrjú Liberty munstur sem hún svo vann upp á nýtt í samvinnu við sérfræðinga frá Liberty. Hún segir samvinnuna við munsturvinnustofuna hafa verið merkilega reynslu, „teymið er svo vel að sér og var mjög opið fyrir mínum hugmyndum." Blómamunstrin eru öll frekar ólík en þar er að finna rauða valmúa, smáar freyjubrár og litrík blóm í ‚art nouveau‘ stíl.
Línan er þó ekki öll í blómum því hún inniheldur einnig glitrandi partýkjóla, röndóttar peysur, kögur- og rússkinsjakka ásamt nokkrum þröngum gallabuxum. Þar fyrir utan eru einnig klútar og belti, en það sem kemur nýtt inn eru undirföt sem Moss hefur aldrei áður hannað fyrir Topshop. Línan er væntanleg í Topshop hér á landi á fimmtudaginn í næstu viku.
