Kate Moss skrifar sjálfsævisögu
Á dögunum staðfesti Richard Branson, forstjóri Virgin, að Kate Moss hafi gert samning við Virgin Books um að skrifa ævisögu sína. Samkvæmt Branson verður bókin spennandi lesning þar sem farið verður yfir lífshlaup fyrirsætunnar, allt frá fyrstu dögum frægðarinnar þegar hún fór í sitt fyrsta fyrirsætustarf 14 ára gömul í það að verða heimsfræg ofurfyrirsæta. Einnig verður farið í samband hennar við rokkarann Pete Doherty ásamt starfi hennar sem hönnuður fyrir Topshop keðjuna.
Moss hefur frá mörgu að segja og búist er við metsölu ef hún lætur allt flakka. „Hún hefur lifað stjörnulífinu til hins ítrasta," sagði Branson. Hægt verður að fá innsýn í fyrirsætuheiminn auk þess sem lesendur kynnast Kate Moss örlítið betur. Vonast er eftir frásögnum um stjörnuvini fyrirsætunnar en það sem flestir vilja fá að vita meira um eru dópvandræði hennar um árið. Áætlanir voru um bókasamning árið 2006 þegar upp komst um kókaínskandal Moss en var þá frestað. Fyrirsætan fær veglega greiðslu fyrir bókasamninginn eða um eina milljón bresk pund.
Engin útgáfudagur hefur verið birtur en fyrir þá sem vilja ólmir fræðast um fyrirsætuna frægu er bent á bókina Kate Moss Style, sem fjallar að mestu leyti um Kate sem stílíkon. Þar er farið yfir stíl hennar í gegnum árin og viðtöl tekin við hennar helstu vini og samstarfsmenn um hvað einkennir hinn fræga Kate Moss stíl. Bókina prýða myndir til stuðnings en henni er skipt í tíu kafla og er hver kafli um hvert skeið í lífi hennar og stílinn sem fylgir því. Bókin hefur fengist í Eymundsson en einnig er hægt að versla hana á vefsíðunni amazon.com.
