Katie Holmes er nýjasti stjörnuhönnuðurinn

frettirkholmes.PNG

Að ofan má sjá hönnun Holmes. Í bláum kjól á frumsýningu Tropic Thunder í ágúst 2008; í samfesting á Broadway frumsýningu í október 2008; í kremuðum síðkjól í Hvíta húsinu í maí á þessu ári.

Eftirfarandi frétt kom vægast sagt nokkuð á óvart. Þær fréttir hafa flugið fjöllunum hærra að leikkonan og eiginkona Tom Cruise, Katie Holmes, ætli sér að koma með fatalínu á markaðinn. Holmes hefur verið að vinna að línunni í um eitt ár ásamt stílista sínum Jeanne Yang. Vinnan byrjaði þegar þær voru pirraðar á því hve erfitt var að finna þægileg en flott föt fyrir dætur sínar, svo þær hófust handa við að teikna upp og búa til flíkur fyrir sig sjálfar og vini.

Athygli vakti þegar Holmes birtist í þrjú skipti á rauða dreglinum í fatnaði eftir sjálfan sig. Ekki datt þó nokkrum í hug að hún hyggði á innreið inn í tískuheiminn. Dúóið, Holmes og Yang, hafa hannað bæði kvenmanns- og barnaföt sem eru að sögn heimildarmanna nokkuð klassísk. Línan verður opinberuð í Los Angeles í september. Góðvinkona Holmes, Victoria Beckham, hefur einnig verið að sækja í sig veðrið í tískubransanum og því aldrei að vita nema stöllurnar hafi skipst á hönnunarráðum upp á síðkastið.