Komandi haust hjá H&M
Tískuheimurinn virkar þannig að haustlínur eru sýndar á miðvetri og vorlínur að hausti til, eins og margir eflaust vita. Fyrir suma virkar þetta ruglingslegt, enda er það ekki beint lógískt að skoða haust- og vetrartískuna þegar vorið er handan við hornið. Það að hönnuðir sýni línur sínar næstum því hálfu ári en árstíðin lætur sjá sig gefur ódýrum verslunarkeðjum ákveðið forskot. Keðjur einis og Zara og H&M geta því verið með öll nýjustu trendin sem sáust á sýningarpöllunum í verslunum sínum í byrjun árstíðarinnar.
Myndir af haustlínunni frá H&M, sem fer í verslanir í lok ágúst, fóru á netið um miðjan mánuðinn. Þó að eflaust færri skelli sér til London eða Köben til að missa sig í sænsku verslanakeðjunni nú á dögum, þá er samt sem áður gaman að sjá hvaða stefnu H&M tekur fyrir haustið. Það er örlítið skrýtið að vera að hugsa um haustfatnað þegar sumarið er rétt að skella á, en það er alltaf gott að vera undirbúinn fyrir vetrartíðina.
Línunni mætti skipta í tvennt eftir fínni klæðnaði og svo þægilegri vetrarfatnaði. Í fínni hlutanum má finna sterk trend eins og ýktar axlir, blúndu, leður, rufflur og pallíettur með svörtu og hvítu í fararbroddi. Hinn hluti línunnar inniheldur notalegri flíkur úr meðal annars prjónaefni, tweed, ullarefni og loðfeld. Léttari efnum er blandað við þau þykkari og eru samsetningarnar lagskiptar. Flíkurnar eru í jarðtónum eins og brúnum, mosagrænum, drapplituðum og gráum.
Stílisering myndanna úr haustherferðinni er meistaralega gerð og ætti að fá einhverja til að þrá utanlandsferð í haust. Haustlínan frá H&M er mjög heilsteypt og vel úthugsuð af svo ódýrri verslanakeðju að vera. Það er greinilegt að mikið hefur verið hugsað um samsetningu og efnisnotkunin er einstaklega flott. Haustvörurnar úr yngri línu H&M, Divided Exclusive, eru ekki síðri þar sem svart og töffaraskapur kemur mikið við sögu. Þá er bara að bíða eftir haustinu.
