Kreppan fer illa með hönnuði

13551244415888frettirlacroix.PNG
Christian Lacroix; Veronique Branquinho; Emma Cook.

Í síðustu viku gengu þær fréttir fjöllunum hærra að tískumerki hátískuhönnuðarins Christian Lacroix hefði orðið gjaldþrota. Lacroix sótti um gjaldrot vegna stanslaus áreitis lánadrottna hans. Bæði veldur efnhagaslægðin þessari ákvörðun Lacroix sem og útþensla fyrirtækisins undanfarið. Lacroix hefur verið án launa í nokkra mánuði og ætlar hann að berjast fyrir tískumerki sínu og því ekki öll von úti. Hann er á höttunum eftir nýjum kaupendum og stefnir á að halda sýningu á hátískuvikunni í júlí, sem verður þó minni í sniðum en vanalega. Í 22 ára sögu fyrirtækisins hefur það aldrei skilað hagnaði, en þar starfa nú um 125 manns.

Belgíski hönnuðurinn Veronique Branquinho mun svo hafa tilkynnt nýlega að hún ætli sér að enda 11 ára göngu tískumerkis síns eftir mikinn tekjuhalla. Pantanir fyrir sumarlínu þessa árs hafa verið afpantaðar auk þess sem ekki hefur verið greitt fyrir margar pantanir. Branquinho er þó ekki atvinnulaus því hún er nýr yfirhönnuður belgíska leðurfyrirtækisins Delvaux. Brunquinho þykir efnilegur hönnuður og var ein af bylgju belgískra hönnuða sem komu á sjónarsvið tískuheimsins á svipuðum tíma, en hinir hönnuðurnir eru Raf Simons hjá Jil Sander, Olivier Theyskens sem var áður hjá Nina Ricci, og A.F. Vandevorst.

Þetta eru því miður ekki einu dæmin því breski tískuhönnuðurinn Emma Cook neyðist til að loka sínu tískufyrirtæki í haust. Cook er vinsæl, og þá sérstaklega í heimalandinu, en hún hefur meðal annars gert línu fyrir Topshop. Cook hugsar hönnun sína mikið út frá efnum, munstrum og smáatriðum og er fyrst og fremst þekkt fyrir það. Víst er að efnahagurinn mun hafa áhrif á fleiri hönnuði en þessa þrjá og því einungis spurning um tíma hvenær næsta tískumerkið verður fyrir barðinu á kreppunni.