Lagfæringar á forsíðum tímarita

30421245875202frettirellefr.PNG
Monica Bellucci á forsíðu franska Elle í apríl; Scarlett Johansson á júlíforsíðunni; Eva Herzigova á aprílforsíðunni.

Apríltölublað franska Elle var sérstakt að því leytinu til að þær konur sem sátu fyrir á forsíðunni voru allar án farða. Átta mismunandi forsíður komu af blaðinu þar sem átta evrópskar stjörnur sátu fyrir hjá ljósmyndaranum Peter Lindbergh. Meðal þeirra sem tóku farðann af fyrir Elle voru Monica Bellucci og Eva Herzigova. Ritstjóri Elle, Isabelle Maury, sagði ljósmyndarann Lindbergh hafa verið þann eina sem gat sannfært konurnar að leyfa náttúrulegu fegurðinni að njóta sín. Útlit þeirra var heldur ekki breytt með hjálp tölvutækninnar. Vakti forsíðan mikla lukku í Frakklandi og víðar, svo mikla í raun að franska Elle ákvað einnig að sleppa því að farða leikkonuna Scarlett Johansson á forsíðu júlí tölublaðs síns.

Í kjölfar þessa nýja uppátækis tískutímaritanna fóru umræður í gang um þá miklu vinnu sem fer í að lagfæra útlit fyrirsæta á síðum tímaritanna. Hægt er að eyða ýmsum misfellum og öðru sem þykja lýti og passa ekki undir kröfur tískuheimsins. Það virðist þó sem lesendum Elle hafi fundist hressandi að sjá loks konur sem bera alvöru fegurð og að þær eru ekki eins fullkomnar og allir halda. Lagfæringar í Photoshop fara oft svo langt að fyrirsæturnar verða svo of fullkomnar að þær verða óraunverulegar. Ólíklegt er að franska tímaritið muni halda áfram að sleppa förðun fyrirsæta sinna, en í Frakklandi er þó verið að hugleiða að skylda tímarit til að taka það sérstaklega fram ef mynd hefur verið breytt. Í gervilandinu Bandaríkjunum var sama tillaga kæfð í fæðingu í fyrra.