Lily Allen fyrir Chanel töskur

21531241823915frettir0805.PNG

Lily Allen er í miklu uppáhaldi hjá Chanel hönnuðinum Karl Lagerfeld, svo miklu í rauninni, að hann hefur beðið hana um að vera andlit Chanel taska. Allen er iðin við að nota Chanel töskurnar sínar og er talin eiga dágott safn af Chanel 2.55 töskum. Chanel 2.55 er ein frægasta og vinsælasta taska franska tískuhússins en hún er vatteruð leðurtaska með keðjuólum. Taskan var hönnuð af Coco Chanel sjálfri á síðustu öld og hefur síðan þá komið í ýmsum útfærslum.

Allen mun birtast í auglýsingaherferð taskanna fyrir næsta haust og vetur en Lagerfeld tók myndirnar í London í vikunni. Allen hefur verið gangandi auglýsing fyrir Chanel töskur undanfarið og hefur Lagerfeld tekið ástfóstri við söngkonunni og boðið henni á sýningar sínar þar sem hún situr í fremstu röð. Með auglýsingaherferðinni fetar Allen í fótspor Jerry Hall, Diane Kruger og Milla Jovovich sem allar hafa sitið fyrir töskulínu Chanel.