Lindsay sem Monroe í spænska Vogue

frettirvoguees.PNG

Lindsay klæðist m.a. vintage Thierry Mugler, Agent Provocateur, Dior og Dolce & Gabbana í myndaþættinum.

Í byrjun maí birtust myndir af vandræðagemlingnum og leikkonunni Lindsay Lohan klædd sem Marilyn Monroe í myndatöku í Hollywood hæðunum. Nú hafa opinberar myndir þessarar töku birst, en tímaritið sem mun birta myndirnar í ágúst tölublaði sínu er spænska Vogue. Lindsay er einnig á forsíðu tímaritsins í fyrirferðarmiklum Dolce & Gabbana kjól með andlit Monroe prentað á kjólinn. Ljósmyndarinn var Alix Malka og þótti Lindsay hann vera skipulagður, „eins og um kvikmynd hefði verið að ræða, og hjálpaði mér að komast í karakterinn,“ segir hún.

Stór partur af hinni goðsagnakenndu Marilyn Monroe er undurfögur hárgreiðslan. Það var frægur Hollywood hárgreiðslumaður, Andy LeCompte, sem setti glamúr krullur í hárkollu Lindsay að hætti Monroe. „Að fara í þennan karakter fyllti hana andagift. Hún elskaði það,“ segir LeCompte. „Hún er alltaf tilbúin að gera tilraunir með slíkt.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Lindsay fer í hlutverk Monroe í myndatöku, en hún hefur sagst verast mikill aðdáandi leikkonunnar. Í viðtali sem fylgdi myndaþættinum í Vogue var hún beðin um að segja frá tískuátrúnaðargoðum sínum. Svar stúlkunnar var nokkuð klassískt, „Karl Lagerfeld, Emanuel Ungaro og Kate Moss.“