Lindsay Lohan til Ungaro

36741244562736frettirungaro.PNG
Esteban Cortazar; Esteban ásamt fyrirsætum úr haustsýningu Ungaro 2009; Lindsay Lohan.

Mikil dramatík umkringir Emanuel Ungaro tískuhúsið en fyrir nokkrum dögum fréttist það að ráða ætti vandræðagemlinginn Lindsay Lohan sem listrænan ráðgjafa. Yfirmenn tískuhússins vilja meina að Lohan komi með nýja orku og umfjöllun að húsinu. Þetta er yfirhönnuður Ungaro, Esteban Cortazar, ekki ánægður með og er sagður hafa nú þegar sagt upp störfum en heimildarmaður segir að restin af hönnunarteyminu muni jafnvel fara með honum. Samkvæmt Page Six er Lohan í samningaviðræðum við yfirmenn Ungaro og því ekkert komið á hreint enn.

Hinn kólumbíski Esteban hóf störf fyrir Ungaro árið 2007 þá 23 ára gamall en hingað til hefur allt gengið að óskum hvað starf hans fyrir Ungaro varðar en tískuhúsið hefur í gegnum tíðina átt erfitt með yfirhönnuði. Nú virðist sem þeir missi þann fjórða frá árinu 2001 en Esteban fékk mjög góða dóma fyrir síðustu línuna sem hann sýndi fyrir tískuhúsið. Nýjustu sögur herma að Esteban hafi gangið svo langt að kæra Ungaro en búist er við að þeir reyni að semja.

Fyrst var sagt að Lohan ætti að vera listrænn ráðgjafi en Women‘s Wear Daily segja að hlutverk Lohan eigi að vera andlit tískuhússins og að hún muni ekki koma nálægt hönnuninni. Ástæðan fyrir því að Esteban er á förum er að hann er ekki samþykkur þeirri markaðs- og auglýsingastefnu sem yfirmennirnir vilja fara. Ef Lohan verður fengin til liðs við Ungaro þá er ljóst að tískuhúsið fær aukna athygli, og hefur það nú þegar gengið eftir út á orðróminn, en sú athygli væri ekki endilega af jákvæðu tagi. Innanbúðarmaður segir engan eiga eftir að taka tískuhúsið alvarlega ef fer sem fer.