Luella fær völdin yfir fyrirtæki sínu

55431245876361frettirluella.PNG
Luella Bartley; sumarlína Luellu 2009; haustlína Luellu 2009-2010.

Hin breska Luella Bartley, sem hefur gengið vel að koma sér á tískukortið með tískulínu sinni Luella, er sögð vera á tímamótum hvað fyrirtæki sitt varðar. Fyrirtæki að nafni Club 21 er alþjóðlegur leyfishafi Luella merkisins og hefur verið það síðan 2003. Luella stofnaði merkið árið 1999 og því var hún aðeins við stjórn þess í fjögur ár. Nú er talið að Luella vilji taka yfir fyrirtækið aftur. Þetta gæti skipt sköpum um framtíð Luella merkisins, sérstaklega núna þegar kreppan ríður yfir.

Eins og flestir vita fer kreppan ekki vel með lúxusfyrirtæki eins og fyrirtæki í mörgum öðrum iðnuðum en þrátt fyrir það er velta Luella tæpir tveir milljarðar, talið í íslenskum krónum. Þetta er Regis Rimbert, forstjóra fyrirtækisins, að hluta til að þakka. Rimbert var ráðinn síðasta sumar og er fyrsti forstjóri fyrirtækisins. Honum hefur tekist vel til að endurskipuleggja fyrirtækið bæði hvað varðar hönnunina en einnig í markaðssetningu og fjármálum. Luella er þekkt fyrir hönnun sem á sér miklar rætur í breskri menningu, allt frá pönkáhrifum til stíls innblásinn af hefðarfrúum.