Madonna og kanínueyrun

Madonna hefur verið andlit Louis Vuitton tvær herferðir í röð. Nú hefur verið birt myndband um gerð seinni herferðarinnar þar sem sjá má Madonnu máta mismunandi lúkk ásamt því að fá að heyra Marc Jacobs tala um af hverju hann valdi Madonnu sem fyrirsætu línunnar og hvaðan kanínueyruhugmyndin kemur. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan til að skyggnast á bak við tjöldin í Louis Vuitton myndatöku Madonnu.

Hér má svo sjá fullbúnar myndirnar úr nýjustu Louis Vuitton herferðinni.