Madonna fyrir Louis Vuitton, taka tvö

53731246593425frettir0206.PNG

Eins og Tískuheimur.is greindi frá í lok apríl er Madonna aftur fyrirsæta auglýsingaherferðar Louis Vuitton, í þetta skiptið fyrir haustlínu franska tískuhússins. Myndirnar eru mikið unnar með hjálp tölvutækninnar og líkist söngkonan helst til póstulínsdúkku. Myndirnar hafa einnig verið unnar þannig að líkt er að söngkonan glói. Ljósmyndarinn er Steven Miesel en hann myndaði Madonnu líka í fyrra skiptið. Í herferðinni ber Madonna kanínueyrun frægu eins og spáð hafði verið, og heldur hún á mismunandi töskum frá merkinu.

Framkvæmdastjóri samskipta innan Louis Vuitton segir lýsingaraðferð myndanna gefa þeim grafíska og djarfa dýpt. Hann útskýrir einnig að hluti ástæðunnar fyrir því að þeir hafi valið Madonnu aftur í auglýsingaherferð eru völd hennar á viðskiptavinina. „Allt sem hún klæddist í fyrstu herferðinni seldist upp á innan við nokkrum mánuðum. Fólk kom inn í verslanirnar og sagði ‚Ég vil Madonnu töskuna, Madonnu skónna.‘ Við erum viss um að viðbrögð þessarrar herferðar verði hin sömu." Það eiga eflaust eftir að verða skiptar skoðanir á auglýsingaherferðinni, en hún mun fyrst birtast í september tölublöðum tímaritanna.