Madonna snýr aftur fyrir Louis Vuitton
Madonna í sumarauglýsingaherferð Louis Vuitton; kanínueyru í haust- og vetrarlínu Louis Vuitton.
Madonna mun að öllum líkindum snúa aftur að fyrirsætustörfum fyrir haustlínu Louis Vuitton. Takan mun eiga sér stað í lok mánaðarins en ekki hefur verið greint nánar frá staðsetningu eða smáatriðum. Sumarauglýsingaherferð Vuitton með Madonnu í fararbroddi prýðir nú tískutímaritin en þar sést poppprinsessan í skrautlegum Vuitton fatnaði og aukahlutum á frönsku kaffihúsi.
Gaman verður að sjá hvernig Madonna birtist fyrir sjónum með kanínueyru haustlínunnar ásamt öðru skrauti í frönskum stíl. Talið er að Steven Meisel, ljósmyndari síðustu herferðar, muni einnig mynda Madonnu í þetta skiptið. Madonna vann með Meisel í gamla daga en hún segir hann hafa meðhöndlað hverja myndatöku sem stuttmynd.
Skiptar skoðanir voru á auglýsingum Madonnu, en eitt er víst að Marc Jacobs, hönnuður Vuitton, fer ekki hina almennu leið í auglýsingum. Talið er að kærasti söngkonunnar, hinn 22 ára Jesus Luz, muni sitja fyrir með henni. Louis Vuitton hafa hvorki neitað né játað orðróminum, en segjast munu birta nánari upplýsingar þegar nær dregur. Víst er að auglýsingarnar verða umtalaðar ef úr verður að Madonna og Jesus Luz verða fyrirsætur.
