Marion Cotillard í Dior stuttmynd

24951242738018frettirdior.PNG
Marion í Lady Dior herferðinni; Marion í 'The Lady Noire Affair' stuttmyndinni.

Á morgun verður Dior stuttmyndin ‘The Lady Noire Affair‘ frumsýnd á heimasíðu tískuhússins. Þar fer franska leikkonan Marion Cotillard með aðalhlutverkið í lögreglurannsókn sem leiðir hana um stræti Parísarborgar og í Eiffel turninn. Stuttmyndin er í film noir stíl, innblásin af kvikmyndum Alfred Hitchcock og leikstýrð af Olivier Dahan. Tilefni myndarinnar er að Marion er nýtt andlit Lady Dior handtaskanna. Í herferðinni situr Marion fyrir í Eiffel turninum, klædd í sumarlínuna frá Dior og með hina klassísku Lady Dior tösku.

Suttmyndin er rúmar sex mínútur að lengd og á hún að vera öðruvísi auglýsing fyrir Lady Dior töskuna. Af hálfrar mínútna sýnishorni að dæma verður myndin í frönskum stíl með dramatískri tónlist og dökku, dularfullu yfirbragði . Stuttmyndir eru vinsælar í tískuheiminum um þessar mundir og því virðist sem Dior hafi viljað fara þessa nýju leið í kynningu á töskunni. „Við vildum fanga glamúrinn, ráðabruggið, kvenhetjuna og leyndarfómsfulla aðdráttaraflið sem geislar í kringum hana. Marion hefur endurvakið Dior konuna," sagði John Galliano, hönnuður Dior um myndina.

Frá og með morgundeginum, 20.maí, verður hægt að horfa á myndina á www.ladydior.com.