Marios Schwab nýr yfirhönnuður Halston
Marios Schwab; sumarlína Marios Schwab; sumarlína Halston.
Undanfarna mánuði hafa sögusagnir um næsta yfirhönnuð ameríska tískuhússins Halston verið mikið á kreiki innan tískuheimsins. Fyrst var talið að breski hönnuðurinn Marios Schwab ætti að taka við stöðunni af Marco Zanini sem yfirgaf merkið á síðasta ári. Forstjóri Halston, Bonnie Takhar, vildi ekki staðfesta orðróminn í mars og sagði að tískuhúsið væri að hugsa um nokkra aðila fyrir stöðuna. Hinn nýlega atvinnulausi Olivier Theyskens sem var hönnuður Nina Ricci varð svo bendlaður við starfið en því var fljótlega neitað.
Loks er það komið á hreint að hinn breski Schwab er yfir hönnun Halston. Hann mun flytjast til New York frá London þar sem hann hefur undanfarið ár hannað línu undir eigin nafni. Það verður að segjast að Schwab hefur hingað til hannað undir nokkuð ólíkri stefnu en Halston tískuhúsið stendur fyrir. Á meðan Schwab er framúrstefnulegur og hugmyndaríkur þegar kemur að fatnaði þá hafa aðalsmerki Halston verið frekar einfaldar og stílhreinar flíkur. Það verður þó gaman að sjá hvað breytist með Schwab undir stjórn.
Bonnie Takhar tók eftir hæfileikum Schwab á tískuvikunni í London í september þar sem hann sýndi sumarlínu sína. „Hann notaði mikið af jersey á nútímlegan hátt. Línurnar voru mjög flæðandi, og okkur fannst þær vera nútímleg túlkun á Halston," sagði Takhar um hinn Central Saint Martins útskrifaða Schwab. Schwab hefur stórar hugmyndir um hverju má breyta hjá Halston. „Á meðan DNA Halston er áríðandi fyrir velgengni framtíðarinnar, þá vonast ég til þess að færa merkið fram á við og gera það viðeigandi fyrir nútímann."
Schwab mun hefja störf hjá Halston 1.júlí og hans fyrsta verk verður að hanna haust- og vetrarlínu ársins 2010 sem verður sýnd í febrúar á næsta ári. Hann ljóstraði upp því sem við má búast í línunni, „einfaldar, auðveldar flíkur gerðar úr nútímlegum efnum og tækni er það sem mun leika stórt hlutverk í því hvernig ég endurskilgreini merkið." Schwab ætlar að nýta sér arfleið Halston tískuhússins en jafnframt hanna aðgreinandi línu samkvæmt tískunni í dag. Hann mun halda áfram að hanna undir samnefndu merki sínu og sýna þá línu á tískuvikunni í London á meðan Halston er sýnt í New York.
