Martin Margiela hættur?
Sumarlína Maison Martin Margiela 2009; hönnuðurinn sjálfur, Martin Margiela, í kringum árið 1997; haustlína Maison Martin Margiela 2009-10.
Mikið hefur verið spáð og spekúlerað um það hvort Martin Margiela sé farinn frá tískuhúsi sínu, Maison Martin Margiela. Margiela er oft kallaður ósýnilegi maður tískunnar þar sem hann leyfir ekki viðtöl né að myndir séu teknar af sér. Í október á síðasta ári fagnaði hann 20 ára afmæli Maison Martin Margiela tískuhússins og fóru þá sögusagnir á kreik um að hann hyggðist hætta störfum hjá húsinu. Talið er að listrænn ágreiningur milli hins 51 árs Margiela og Diesel fyrirtækisins, sem keyptu tískuhús hans árið 2002, hafi orðið til þess að hann ákvað að hætta.
Það hefur þó aldrei verið staðfest að hann væri hættur en dyggum aðdáendum fannst þeir ekki sjá alvöru Margiela hönnun ganga fram á sýningarpallana í mars síðastliðinn þegar haustlína þessa árs var sýnd. Í mars sagði forstjóri Maison Martin Margiela að hönnuðurinn ynni ekki fullt starf hjá húsinu en ráðlagði þess í stað um stefnu hönnunarinnar. Nú hefur hins vegar einn hönnuður af mörgum sem starfa hjá tískuhúsinu sagt að Margiela hafi ekki verið við stjórnvölinn í nokkra mánuði og velta margir fyrir sér hvort hann sé horfinn með öllu.
