Matthew Williamson fyrir H&M

37171238063240frettir2603.PNG

Breski hönnuðurinn Matthew Williamson er nýjasti hönnuðurinn til að vinna með tískuvörukeðjunni H&M. Eins og flestum ætti að vera ljóst leita H&M árlega samstarfs við fræga hönnuði, en meðal þeirra sem hafa hannað fyrir H&M er Stella McCartney, Roberto Cavalli og nú síðast Rei Kawakubo hönnuður Comme des Garcons. Williamson hefur nú verið fenginn til að hanna vor- og sumarlínu fyrir keðjuna.

Hann er sagður hafa tekist vel til að endurskapa ýmis einkenni úr sínu eigin merki fyrir ódýrari línuna. Þar er finna sterka og skæra liti, æpandi munstur og mikið af páfuglsfjaðraprinti, allt í suðrænum og sumarlegum stíl sem ætti að birta upp á fataskápinn eftir dimman vetur. Williamson er góður að gera föt sem henta á sólríkum svæðum, kaftan og maxi kjólar eru þar á meðal ásamt satín buxnasamfesting, og eru sniðin flæðandi og þægileg.

Williamson innihélt einnig aðeins harðari flíkur í línunni, eins og gaddabelti og leðurjakka sem harmoneruðu vel við bóhemaflíkurnar. "Ég vildi gera borgarlínu með einkennandi munstrum og formum úr mínu eigin merki," tjáði hönnuðurinn sig um línuna. Hann sagðist hafa farið í gegnum fyrri hönnun sína og valið einna vinsælustu flíkurnar í gegnum tíðina til að endurgera fyrir H&M. Verðin eru dýrari en venjulegar H&M flíkur, með verðflokki frá um 2.800 – 40.000 íslenskra króna.

Williamson segir þetta spennandi tækifæri fyrir sig, og segir hann H&M hafa skapað hálfgert brjálæði í tískuheiminum með því að láta virta hönnuði hanna ódýran fatnað. „Ég er spenntur yfir því að verk mín fyrir H&M verði aðgengileg svo mörgu fólki um allan heim." Hann mun einnig hanna karlmannslínu en hönnunarlínur H&M hafa ekki verið gerðar fyrir menn hingað til.

Ef marka má viðbrögð viðskiptavina H&M við hönnunarlínunum mun þessi valda mikilli eftirspurn, enda Matthew Williamson þekktur fyrir flotta hönnun. Það er ljóst að hann á marga aðdáendur sem bíða nú spenntir eftir að komast yfir fatnað hans fyrir H&M. Fyrir Íslendinga á faraldsfæti, þá er áætlað að ‚exclusive‘ lína komi í útvaldar 200 verslanir H&M 23.apríl og önnur sending fer svo í allar 1700 búðirnar 14.maí.