Matthew Williamson kemur heim

62421244417983frettir0706.PNG

Hinn breski Matthew Williamson er einn af þeim hönnuðum sem ætla að sýna í heimalandinu Bretlandi á tískuvikunni í haust. Williamson hefur áður sýnt línu sína í New York en hefur ákveðið að sýna hana í London vegna 25 ára afmælis tískuvikunnar þar nú í haust. Cristopher Bailey ætlar einnig að sýna Burberry merkið í London og þóttu það stórar fréttir undir lok síðasta mánaðar. Matthew Williamson er dáður hönnuður um allan heim og er breska tískuráðið því lukkulegt þessa dagana yfir að fá svo stóran hönnuð til að sýna í London.

"Við vorum svo hrifin af þeim skriðþunga sem er að byggjast upp í kringum áætlanir breska tískuráðsins til að halda upp á afmælið að við ákváðum að sýna í London. Þetta verða tímamót hvað tískuvikuna í London varðar og við viljum vera hluti af fagnaðinum," sagði hönnuðurinn. Breskt tískufólk bindur nú vonir við að fleiri fylgi í fótspor Burberry og Williamson, en meðal breskra merkja sem sýna erlendis eru Jonathan Saunders, John Galliano, Stella McCartney og Alexander McQueen.

Eins og flestir vita er Williamson nýjasti hönnuðurinn til að fara í samstarf við H&M. Hann hefur hannað sína eigin línu frá árinu 1997 og á þessu tímabili hefur hann einnig hannað fyrir Pucci tískuhúsið sem hann hætti nýverið. Williamson hefur sóst eftir að sýna í New York þar sem meiri alþjóðlega athygli er að fá þar. Hann virðist þó spenntur fyrir að sýna í London eftir nokkra mánuði. „Tískuvikuáætlunin stefnir í að verða virkilega flott sýning á litrófi breskra hönnunarhæfileika í dag, allt frá rótgrónum merkjum til yngri hönnuða." Tískuvikan stendur frá 18. til 22. september.