Max Azria og Miley Cyrus sameina krafta sína

87611244554991frettir0906.PNG
Miley Cyrus og Max Azria; klæðnaður úr Walmart línunni; Cyrus í Hervé Léger by Max Azria.

Tískuhönnuðurinn Max Axria og ungstirnið Miley Cyrus hafa ákveðið að hefja samstarf og hanna tískulínu fyrir bandarísku verslanakeðjuna Walmart. Línan kemur í verslanir í ágúst en hún mun innihalda toppa, buxur, suttermaboli ásamt skóm, allt undir tuttugu dollurum og verður miðað á yngri markhópinn. „Ég elska að búa til samsetningar sem snúast um persónulegan stíl," segir Cyrus og bætir jafnframt við að samvinnan við Max Azria hafi verið frábær reynsla. "Miley Cyrus er hæfileikarík og viðmótsgóð, þannig að vinnan með henni mótaði línu sem er ósvikinn og lífleg," segir í tilkynningu frá Azria.

Cyrus er mikill aðdáandi Azria, sem fyrir utan að hanna undir eigin merki og BCBG er einnig aðalhönnuður Hervé Léger merkisins sem er gríðarlega vinsælt meðal stjarnanna. Cyrus hefur nokkrum sinnum klæðst hönnun hans á rauða dreglinum, síðast í lok apríl þegar hún klæddist glamúr míníkjól úr Hervé Léger línunni. Blanda þeirra tveggja í hönnun er vægast sagt nokkuð óvænt en tískuspekúlantar vonast til þess að línan komi vel út, svo ekki sé vegna Max Azria sem þykir virtur hönnuður.