Mischa Barton í tískuþætti
Ashton Kutcher, Mischa Barton, Elle MacPherson.
Í haust mun nýr tískuþáttur, The Beautiful Life, líta dagsins ljós. Þátturinn fjallar um hóp fyrirsæta af báðum kynjum sem búa saman í New York. Framleiðandi þáttarins er Ashton Kutcher en meðal leikara eru ofurfyrirsætan Elle MacPherson, High School Musical leikarinn Corbin Bleu, ásamt Mischu Barton sem er ábyggilega best þekkt fyrir leik sinn í unglingaseríunni The OC þótt hún hafi einnig verið í nokkrum kvikmyndum síðustu ár.
Mischa var nýlega spurð út í þáttinn og væntingar hans. „Hann er eins og Entourage tískuheimsins og ég held að það sé raunverulegur markaður fyrir hann á tímum sem þessum," sagði leikkonan, en tökur á þættinum byrjuðu í mars og er hann því enn í mótun. Hún segir The Beautiful Life sameina skemmtilegheitin og móralinn í The OC, bara tíu sinnum betra.
Auðvitað var hún beðin um að ljóstra upp tískunni í þættinum. „Tískan í The OC var svo sannarlega frábær en þetta yrði eins og hátíska. Og það er eitthvað svo heillandi við heim hátískunnar sem hefur ekki verið kannaður almennilega og ég held að það gæti verið mjög spennandi." Þátturinn er sagður vongóður á vinsældir en Mischa telur hann eiga eftir að verða stóran smell.
Í fyrsta þættinum af The Beautiful Life mun hönnuðurinn Zac Posen leika gestahlutverk. „Ég vil ekki vera hrokafull en, ég meina, við urðum heppin – Zac Posen er með tískusýningu í fyrsta þættinum og leikur sjálfan sig sem hönnuð," segir Mischa en það eitt ætti að láta flesta kveikja á sjónvarpinu fyrir þáttinn. Hvað hönnunarmerki varðar þá klæðist persóna Mischu meðal annars Versace og segir hún aukahluti eins og skó og töskur spila stórt hlutverk.
