Missoni vill hanna fyrir H&M

51061240593920frettirmissoni.PNG
Angela Missoni; vor- og sumarlína Missoni 2009; haust- og vetrarlína Missoni 2009-10.

Nú þegar H&M lína Matthew Williamson er farin í sölu fylla sögusagnir netheima þess efnis að Angela Missoni, yfirhönnuður hins ítalska Missoni tískuhúss, sé næsti hönnuður til að fara í samstarf við H&M. Í nýlegu viðtali við Telegraph sagðist hún vilja hanna fyrir yngri markaðinn. „Ég myndi vilja gera eitthvað með H&M af því mér finnst það öflug leið til að ná til yngri stelpna."

Þó að hún hafi einungis lýst áhuga sínum á að hanna fyrir H&M er möguleiki á að H&M sé nú þegar búið að hafa samband við hana um hönnunarlínu, en aðalhönnuður H&M, Margareta Van den Bosch, sagði í mars síðastliðnum að hún væri að skoða hugsanlega hönnuði í næsta samstarf. Missoni er þekkt fyrir litrík röndótt munstur og hefðu margir ekkert á móti því að eiga Missoni flík í skápnum.

Í viðtalinu sagði Angela einnig að hún myndi vilja hætta að vera með tískusýningar og finna annars konar sýningarform. „Ég vil vera dæmd út frá fötunum en ekki sýningunni," sagði hún um ástæðuna. Missoni er gamalgróið fjölskyldufyrirtæki og vill Angela fara aftur til fortíðar hvað sýningar varða. „Foreldrar mínir héldu sýningarnar sínar í verksmiðjunni sinni og buðu hundrað manns. Það var allt sem þurfti."

Angela er ekki mikið fyrir stór nöfn hvað fyrirsætur varðar og finnst henni tilefnislaust að ráða Naomi Campbell og Gisele Bundchen til að ganga sýningarpallinn fyrir sig. „Ég kýs frekar að sýna línurnar mínar á ungum, ferskum stelpum sem fanga þann anda. Að vera með Naomi eða Gisele í sýningunni er í raun einungis til að segja að þú hafir geta fengið þær."