Miuccia Prada líkaði haltrandi fyrirsæturnar
Miuccia Prada; fyrirsætan Katie Fogarty í Prada sýningunni; fyrirsætan Yulia Kharlaponova.
September blöð tískutímaritanna eru stútfull af safaríkum viðtölum og myndaþáttum með heitustu talentum tískuheimsins í fararbroddi. Eitt þessara viðtala við Miuccia Prada í W Magazine. Þar talar hún um haustlínu sína, sem var innblásin af sjómönnum, og ýmislegt fleira. Það sem vakti almenna athygli er umtal hennar um tískusýningu síðustu sumarlínunnar. Sýningin átti sér stað síðasta haust en hún gekk ekki snurðulaust fyrir sig. Hælaskórnir sem Miuccia hafði hannað voru svo himinháir að fyrirsæturnar áttu afskaplega erfitt með gang. Tvær fyrirsætur voru meira að segja svo óheppnar að hreinlega detta í miðjum kattarganginum.
Prada hefur ekki tjáð sig um atvikið þangað til núna. Í viðtalinu kom í ljós að henni líkaði í raun við það að fyrirsæturnar voru við það að detta. „Það gerði sýninguna áhugaverðari,“ segir hún í samtali við W. Fyrirsætunum líkaði það hins vegar ekki. „Ég fékk kvíðakast, hendurnar á mér skulfu,“ sagði ein þeirra eftir sýninguna. Sumar grétu jafnvel baksviðs af því þær voru svo hræddar um að detta. Áhorfendur sýningarinnar gagnrýndu einnig háa skótauið og sögðu erfiðleikana með ganginn vera truflun frá fatnaðinum. Skórnir fengu þó allavega næga athygli en ekki er víst að margir hafi þorað að verða sér úti um Prada skópar úr sumarlínunni, nema þá til að horfa á uppi á hillu.
Hér fyrir neðan má sjá myndband af fyrirsætunni Katie Fogarty detta í Prada sýningunni, ásamt viðtölum við nokkra þekkta sýningargesti.
