Möguleikar íslenskrar fatahönnunar
Í tilefni hönnunardaga sem nú standa yfir sýnir Skjár Einn heimildarmynd í kvöld um möguleika íslenskrar fatahönnunar. Myndin, sem er gerð fyrir tilstuðlan Fatahönnunarfélags Íslands, kallast Möguleikar 2009 og er eftir fjölmiðlamanninn Þorsteinn J. Vilhjámsson en honum til aðstoðar er Gunnar Hilmarsson, formaður Fatahönnunarfélagsins og annar eigandi tískumerkisins Andersen & Lauth.
Í myndinni er staðan tekin á íslenskri fatahönnun eins og hún er í dag. Fjöldinn allur af ólíkum og spennandi hönnuðum starfa í faginu á Íslandi, og selja vörur sínar út um allan heim. Margbreytileikinn einkennir mjög litrófið hjá íslenskum fatafyrirtækjum. Farið verður yfir hvað einkennir hönnunina þetta árið, og þá möguleika og tækifæri sem íslenskir fatahönnuðir búa við. 10 hönnuðir segja frá hugmyndum sínum og framtíðarsýn. Í samtali við Fréttablaðið segir Gunnar að þetta séu „nokkurs konar heimsóknir til fatahönnuða og gefi ágætis mynd af breiddinni og stemningunni í faginu".
Myndin er gerð í samstarfi við Norræna húsið þar sem nú fer fram HönnunarMars, sem fjallar um vinnu íslenskra fatahönnuða, innan Norræna tískutvíæringsins. Viðburðurinn stendur fram á sunnudag og verður myndin einnig sýnd í Norræna húsinu, í dag, á morgun og á laugardag kl. 13, 15 og 17. Fyrir þá sem vilja hins vegar horfa á hana heima í stofu þá er hún á dagskrá Skjás Eins í kvöld kl. 18.50 og er endursýnd á morgun kl. 12.40 og 19.40 og á laugardag kl. 16.05.
