Mun lúxusiðnaðurinn lifa kreppuna af?
Í grein sem birtist nýlega í The Wall Street Journal var lögð fram sú spurning hvort lúxusiðnaðurinn muni lifa kreppuna af. Nú þegar hafa margar dýrar verslanir í Bandaríkjunum verið með brunaútsölu á hönnunarvarningi til að koma honum út. Neytendur eru farnir að venjast háum afsláttum og borga varla fullt verð fyrir nýjar tískuflíkur og aukahluti. Blaðamaður Wall Street Journal svarar ekki spurningunni sem hann lagði upp með í byrjun, hver getur það svo sem, en hann veltir fyrir sér hvernig verslunarhegðun hefur breyst eftir að kreppan skall á.
Þetta sést til dæmis í vinsælustu netverslun með hönnunarvarning á Internetinu, Net-A-Porter, en stofnandi verslunarinnar, Natalie Massenet, ákvað að koma til móts við efnahaginn með því að opna hliðarsíðuna The Outnet sem er einskonar útsölumarkaður Net-A-Porter. Massenet aðlagaði sig þannig við breyttan efnahag, en það reyna hönnuðir einnig að gera með því að lækka verðið til smásölubirgja. Hönnuðirnir opna jafnvel sjálfir útsölustaði þar sem hægt er að nálgast vörur úr fyrri línum á spottprís eða sýnishorn sem er ekki hægt að selja á fullu verði.
Samkvæmt könnun Women‘s Wear Daily eru rótgróin tískufyrirtæki sem hafa sterka tískusýn líklegri til að lifa kreppuna af. Dagblaðið spurði hundrað sérfræðinga innan lúxusiðnaðarins sömu spurningarinnar, ‘Hvaða tískufyrirtæki telur þú að eigi eftir að blómstra í kreppunni?‘ Þau tískuhús sem voru oftast nefnd voru Chanel, Louis Vuitton, Marc Jacobs og Hermés. Ódýru tískukeðjurnar, sem verða seint talinn lúxus, komu óvenju vel út. Topshop lenti í fyrsta sæti en Forever 21 og H&M komust einnig ofarlega á listann.
Það er í raun hægt að gefa sér þá fullyrðingu að lúxusiðnaðurinn gæti lifað kreppuna af ef vörurnar eru með ofurafsláttum þannig að fólk geti yfir höfuð keypt þær. Eða er þá kannski lúxusinn horfinn? Sérstaklega þar sem lúxus hefur vanalega verið titlaður um eitthvað sem er ekki á allra færi. Lúxus er að verða hagkvæmari iðnaður sem fleiri geta nálgast og gerir hann þar af leiðandi minna spennandi. Tíminn mun aðeins leiða í ljós hvernig lúxusfyrirtæki spila sig úr kreppunni en þangað til geta neytendur glaðst yfir því að fá nýjustu tískuna af sýningarpöllunum á hálfvirði, allavega þeir sem eiga enn einhverja peninga.
