Músíkmógúll hannar strigaskó fyrir Gucci
Mark Ronson – Margir kannast eflaust við eftirnafnið, en Ronson er bróðir plötusnúðarins Samönthu Ronson (fyrrverandi kærustu Lindsay Lohan), og fatahönnuðarins Charlotte Ronson. Mark hefur verið að gera það gott í tónlistarbransanum, aðallega sem pródúsent ásamt því að þeyta skífum. Nú getur Mark þó bætt við sig titlinum hönnuður þar sem hann hefur unnið með ítalska tískuhúsinu Gucci að gerð strigaskóa.
Yfirhönnuður Gucci, Frida Giannini, hefur útbúið hugmynd um sérstaka ‘pop-up‘ verslun sem mun ferðast um heiminn og opna tímabundið á mismunandi stöðum, og er fyrsti staðurinn er SoHo í New York. New York verslunin opnar í október en eftir það ferðast hún meðal annars til London, París, Berlín og Tókýó. Verslunin mun innihalda 18 strigaskó, aðallega karlmanns en þó verða tvær týpur fyrir konur.
Framlag strigaskóaaðdáandans Mark Ronson til verkefnisins er að hanna eina gerð af strigaskóm fyrir hverja borg. „Ég hef eytt mörgum árum sem ákafur strigaskóasafnari, þannig að ég vildi tryggja að Gucci skórnir myndu verða virkilega sérstakir frá fagurfræðilegu sem og safnlegu sjónarhorni,“ segir Ronson. Eins og gefur að skilja fást Mark Ronson skórnir aðeins í takmörkuðu upplagi en með í kaupunum fylgir vínylplata með vel völdum lögum frá Mark og tónlistarvinum hans.
