Naomi Campbell um reiðistjórnun og kynþáttafordóma

16571240089442frettircampbell.PNG
Naomi Campbell í myndatöku fyrir Giant tímaritið.

Breska súpermódelið Naomi Campbell hefur verið í þónokkrum tímaritaviðtölum upp á síðkastið en þar hefur hún meðal annars tjáð sig um kynþáttafordóma í tískuheiminum ásamt reiðistjórnun sinni. Eins og frægt er orðið réðst hún á ýmsa úr starfsliði sínu með farsíma. Þar sem greinilegt er að Campbell á erfitt með að hemja skap sitt var henni ítrekað skipað að sækja námskeið í reiðistjórnun.

Campbell virðist þó vera að reyna að taka sig í gegn. „Það kemur augnablik þar sem þetta allt nær manni og maður verður að afgreiða það. Og það varð til þess að ég endurmat sjálfa mig og fékk alvöru meðferð við reiðinni og fíkn minni. Sumir þola einn drykk eða línu af kókaíni, en ég hef loksins áttað mig á að fyrir mig er það allt eða ekkert – og það verður að vera ekkert," sagði hún í samtali við Giant tímaritið.

Hvað kynþáttafordóma varðar finnst Campbell enn erfitt að vera svört fyrirsæta í heimi þar sem hvítar og bláeygðar fyrirsætur eru normið. Hún segist ekki geta opnað tímarit nema þar séu ljóshærðar og bláeygðar stelpur. „Bandaríski forsetinn kann að vera svartur, en sem svört kona, er ég enn undantekning í þessum bransa. Ég þarf alltaf að leggja harðar af mér til að vera meðhöndluð að jöfnu."

Í dag virðist Campbell aftur á móti vera komin á réttan kjöl hvaða reiðistjórnun varðar, en hún er í prógrammi við alkahólisma og segir það hafa hjálpað sér mikið. „Ég vildi vona að ég hefði komist að því fyrr, en ég komst að því þegar ég komst að því, og lífið er gott." Hún býr nú í Moskvu með rússneskum billjónerkærasta sem hún segir vera hinn helminginn af sér.