Net-A-Porter í samstarf við Apple

frettirnetapp.PNG

Natalie Massenet, stofnandi netverslunarinnar Net-A-Porter, og Roland Mouret, tískuhönnuður, hafa tekið höndum saman við Apple fyrirtækið og komið á fót sérstakri viðbót við iPhone og iPod touch. Viðbótinni, sem kallast Net-App, er hlaðið í símann og felur í sér að hægt er að versla lúxus tískuvörur í netverslunni Net-A-Porter, hvar og hvenær sem er. Þetta er ekki fyrsta tískuviðbótin við iPhone, því fyrir nokkru fór fatakeðjan Oasis í svipað samstarf við Apple.

Tíska og tækni eru farin að eiga oftar saman, en í lok maí tilkynnti Tískuheimur.is að von væri á tölvuleik um tískuvikur. Nýja Net-App tískuviðbótin er bylting á sinn hátt líkt og fyrir um áratugi þegar netverslanir voru sjaldséðnar. „Þegar við stofnuðum síðuna árið 2000 var enginn markaður í netverslunum,“ segir Massenet. Nú er öldin hins vegar önnur og hefur Massenet opnað systursíðuna The Outnet til að koma til móts við nýja tíma og gengur salan vonum framar.

Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndband um Net-App.