Norræni tískutvíæringurinn
Á morgun, 19.mars, hefst Norræni tískutvíæringurinn í Norræna húsinu. Tvíæringurinn er nú haldinn í fyrsta sinn og verður tísku- og skartgripahönnun frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi í forgrunni. Ýmislegt verður í gangi, allt frá ráðstefnum og fyrirlestrum til léttari viðburða líkt og tónleika og fatamarkaðs. Opnaður verður Biennale Bar en þangað verður hægt að koma og sækja sér allar upplýsingar tengdar tvíæringnum auk þess sem þar verða daglegir viðburðir kl. 16.00.
Meginviðburðurinn er sýningin Frammi fyrir sköpunarkraftinum en þar verður hægt að líta á það besta af vest-Norrænni hönnun. Sýningarstjórinn, Matthias Wagner K, valdi hönnuðina á sýninguna en áhrif náttúru, lista og samfélags eru mikil í sköpunarverkum þeirra og birtast þessi áhrif sérstaklega í vali á litum, efni og formi. Þeir íslensku hönnuðir sem taka þátt í sýningunni eru asta creative clothes, STEiNUNN og Spaksmannsspjarir.
HönnunarMARS er svo hápunktur tískutvíæringsins þar sem Fatahönnunarfélag Íslands sýnir það nýjasta í íslenskri fatahönnun. Dagskrá HönnunarMARS stendur frá 23.-29.mars og fer fram í Norræna húsinu. 7 gluggar er einn af viðburðunum innan HönnunarMARS þar sem sjö íslenskir hönnuðir og tískuframleiðendur sem selja vöru sína bæði innanlands og erlendis, sýna línur sínar fyrir næsta vetur. Þau fyrirtæki sem sýna í 7 gluggum eru Andersen & Lauth, Birna, Elm, Farmers Market, Hanna, Mundi og Nikita.
Aðrir viðburðir eru t.d. ráðstefnurnar Meðvituð um tískuna: Sjálfbærni í tískuiðnaðinum og málþing um endurskilgreiningu hins vest-Norræna sem vörumerkis. Ýmsir fyrirlesara munu koma fram, má þar helst nefna Peter Ingwersen frá tískumerkinu Noir og Eva Kruse frá tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Einnig verða sýndar kvikmyndir og heimildarmyndir tengdar hönnun og tísku. Að lokum er vert að nefna fatamarkaðinn sem haldinn verður á Biennale Barnum 27.mars með vörum frá upprennandi íslenskum hönnuðum.
Norræni tískutvíæringurinn er menningarhátíð fyrir alla þá borgarbúa og gesti sem hafa áhuga á norrænni hönnun og tísku. Mikið verður um að vera og því ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og eftir sínu áhugasviði. Viðburðurinn stendur í rúmar tvær vikur, eða til 5.apríl. Nánari dagskrá er að finna á www.nordicfashionbiennale.com.
