Ný lína hinnar áhrifamiklu Stellu McCartney

12891241718343frettirmccartney.PNG
Gwyneth Paltrow og Stella McCartney; lína Stellu fyrir Net-a-Porter.

Stella McCartney, dóttir bítilsins Paul McCartney, komst á lista Time Magazine yfir 100 áhrifamesta fólkið. Stella var eini fulltrúi tískuheimsins á listanum, en á honum voru ekki minni menn en Gordon Brown og Barack Obama. Margir hafa tjáð undrun sína á að fólk eins og ritstjóri Vogue, Anna Wintour, og smásölukóngurinn Phillip Green, eigandi Topshop keðjunnar, hafi ekki náð á listann.

Meðmæli Stellu veitti góðvinkona og diggur aðdáandi hennar Gwyneth Paltrow. Það virðist sem Stella hafi ekki komist á listann fyrir tískusnilli, ef marka má ummæli Paltrow. „Það er ekki hægt að lýsa Stellu McCartney nákvæmlega, nema að leggja áherslu á að hún sé grænmetisæta. Hún nær að sannfæra þig að dráp dýra eru ónauðsynleg og miskunalaus og slæm fyrir umhverfið."

Í öðrum fréttum Stellu er ný lína hennar fyrir lúxusnetverslunina Net-a-Porter. Línuna gerði hún sérstaklega fyrir verslunina en hún er ljós og létt, og inniheldur fullkomlega þægilegar sumarflíkur. Línan skiptist í fjórar minni línur sem allar bera sín eigin nöfn. Aðallitirnir eru drapplitaður, kremaður og fölbláar ásamt skýjamunstri sem einkennir línuna.