Nýjustu fréttir af tískuvikunni í London
Jonathan Saunders; Amanda Wakeley (efri); Jasmine Al Fayed (neðri); Giles Deacon; Kelly Cutrone.
Breska tískuráðið, sem sér um skipulagningu tískuvikunnar í London, hefur fyrirætlanir um að gera næstu tískuviku, haldna 18.-22.september, að þeirri stærstu og bestu hingað til. Tískuvikan fagnar 25 ára afmæli á árinu og í tilefni af því verður hún veglegri en áður. Margir breskir hönnuðir sem hafa öðlast frægð innan tískuheimsins á alþjóðlegan mælikvarða, hafa ákveðið að snúa aftur heim. Í fyrstu fréttunum voru það Burberry, Matthew Williamson og Pringle of Scotland sem tilkynntu breytinguna, en nýlega hafa fleiri bæst í hópinn.
Í lok júní sagðist hinn ungi Jonathan Saunders ætla að sýna í London í þetta skiptið. „Staðsetning sýningarinnar er blanda af því þar sem þér líður mest skapandi og þar sem viðskiptin eru,“ sagði Saunder sem hefur sýnt í New York síðustu misserin. „London er þar sem ég er staðsettur.“ Nokkru seinna fréttist það að Jasmine Di Milo, Clements Ribeiro og Amanda Wakeley ætli sér að taka þátt í hátíðarhöldunum í London í haust. Meira að segja hinn ameríski Jeremy Scott ætlar að flytja sig yfir til London vegna tilefnisins.
En á meðan fyrrnefndir hönnuðir sjá ástæðu til að snúa aftur heim, þá hefur Giles Deacon ákveðið að sýna í París í stað London á væntanlegri tískuviku. Deacon vann nýlega ANDAM verðlaunin sem koma með 160 þúsund evra verðlaunaféi og virðist hann ætla að nýta peningana í sýningu í París. Þróunin er skiljanleg, kollegi Deacon, Gareth Pugh, vann ANDAM verðlaunin í fyrra og hefur sýnt í París síðan þá. Aquascutum hafa einnig tilkynnt fjarveru sína frá tískuvikunni en hafa þó ekki ákveðið að leita til annarrar borgar, heldur ætla að halda lágstemmdari kynningu á eigin vegum.
Tískuráðið hefur svo fengið til liðs við sig amerískan tískuvikugúru, Kelly Cutrone, sem er eigandi almannatengsla-fyrirtækisins People‘s Revolution sem sérhæfir sig í tísku. Cutrone er góðkunn skipulagningu tískusýninga og er það von forsvarsmanna tískuvikunnar í London að Cutrone nái að gera vikuna enn meira spennandi og viðburðarríka. Cutrone á að draga að erlenda tískublaðamenn og innkaupafólk, og hámarka þannig umfjöllunina. Með alla stjörnuhönnuðina um borð er von á heljarinnar tískuviku og án efa þeirri bestu í Lundúnaborg hingað til.
