Nýr yfirhönnuður Cheap Monday
Ann-Sofie Back; sumarlína Ann-Sofie Back 2009; sumarlína Cheap Monday 2009.
Sænska fatafyrirtækið Cheap Monday hefur fengið nýjan yfirhönnuð til liðs við sig, Ann-Sofie Back. Cheap Monday hefur einbeitt sér að framleiðslu gallabuxna sem hafa notið mikilla vinsælla í götutískunni, en merkið hefur verið selt í KronKron hér á landi. Með ráðningu Back ætla Cheap Monday að stækka við merkið og auka framleiðslu á öllum tegundum fatnaðar. Back mun því verða undir stjórn allrar hönnunar nema gallabuxnanna, sem verða í höndum Örjan Andersson, stofnanda Cheap Monday. „Það hefur verið mikill fókus á gallabuxur hingað til, og mitt verkefni er að byggja sterkari grunn undir það sem tilheyrir ekki gallabuxum," segir Back.
Back hefur veirð búsett í London í nánast áratug og hefur hannað undir eigin merki undanfarin ár. Hún flutti hins vegar til Stokkhólms fyrir nokkru og var þá boðið starfið. „Það var skemmtileg tilviljun að þegar ég flutti aftur til Stokkhólms til að vera með manninum mínum þá skyldi þetta starf koma upp," sagði Back í samtali við Vogue. „Cheap Monday er frábært merki og sumu er bara ætlað að vera." Back ætlar þó ekki að hætta hönnun á línu í eigin nafni og sýnir næstu línu sína á tískuvikunni í London í september. En það verður spennandi að sjá hvernig Cheap Monday þróast á næsta árinu með nýjan hönnuð við stjórn.
