Öðruvísi nálgun í auglýsingum Louboutin
Í nýjustu auglýsingaherferð skóhönnuðarins Christian Louboutin ákvað hann að vinna með ljósmyndaranum Peter Lippmann og endurhugsa skósköpun sína sem kyrralífsmynd frá átjándu öld. Hver skór var miðpunktur hverrar myndar með ýmsum leikmunum í kringum sig, eins og framandi ávexti, litskrúðugt sælgæti og blómaskreytingar. Myndirnar voru óaðfinnanlega unnar en skórnir urðu eins og hluti af myndinni og var greinilega búið að úthugsa hverja hugmynd fyrir sig. Herferðin vakti athygli fyrir frumlega útfærslu af auglýsingum lúxusvara þar sem auglýsingar í tískuheiminum snúast vanalega um glamúr og glans.
